Opið WR íþróttamót Spretts verður haldið 16.- 18. maí nk. á félagssvæði Spretts. Skráning hefst föstudaginn 9.maí á
sportfengur.com og stendur til miðnættis þriðjudaginn 13. maí. Nánari dagskrá verður auglýst þegar skráning liggur fyrir.
Keppt verður í eftirtöldum flokkum og greinum:
Meistaraflokkur: Fjórgangur V1 - Tölt T1 - Tölt T2 - Fimmgangur F1 - Gæðingaskeið
1.flokkur: Fjórgangur V2 - Tölt T3 - Tölt T2- Fimmgangur F2 - Gæðingaskeið
2.flokkur: Fjórgangur V2 – Tölt T3 - Tölt T2 - Tölt T7 - Fimmgangur F2 - Gæðingaskeið
Ungmennaflokkur: Fjórgangur V2 - Tölt T3 - Tölt T2 - Tölt T7 - Fimmgangur F2 – Gæðingaskeið
Unglingaflokkur: Fjórgangur V2 - Tölt T3 - Tölt T2- Tölt T7 - Fimmgangur F2 – Gæðingaskeið
Barnaflokkur: Fjórgangur V2 - Tölt T3 - Tölt T7
100m skeið – 150m skeið – 250m skeið
Mótanefnd áskilur sér rétt til að sameina og/eða fella niður greinar og flokka ef það næst ekki nægileg þátttaka
Skráningargjöld eru 5.000 kr í öllum flokkum nema í barna og unglingaflokkum sem og skeiðgreinum ( 250m, 150m, og 100m ) sem þau eru 4000 kr