FEIF Youth Camp sumarbúðirnar verða haldnar dagana 22. – 29. júlí 2013 í vesturhluta Noregs, milli Álasunds og Moldö. Þetta eru sumarbúðir fyrir hestakrakka á aldrinum 13-17 ára á árinu og markmið þeirra er að kynna krakka frá aðildarlöndum FEIF fyrir (hesta)menningu annara þjóða og að hitta ungt fólk með sama áhugamál.
Það er norska Íslandshestasambandið í samstarfi við þjálfunarstöðvarnar Kjersem og SP og hestamannafélagið á staðnum, Vestnes. Gistingin verður til að mynda í Kjersem.
Það sem krakkarnir munu hafa fyrir stafni í Noregi er til dæmis þetta:
- 2 reiðtúrar á íslenskum hestum í hinum stórfenglegu norsku fjöllum
- Fjallganga upp á eitt fallegasta fjall Noregs með leiðsögumanni sem hefur klifið Mount Everest
- Fræðsla um tamningu hesta
- Dagsheimsókn til heimsmeistarans Stians Pedersen
- Farið í viðarkyntan heitan pott
- Skoðunar- og verslunarferð í Ålesund
- Þjálfað fyrir litla keppni
- Geirangursfjörður heimsóttur en hann er sannarlega fallegur staður og er m.a. á heimsminjaskrá UNESCO
- Grillkvöld og margt fleira!
Umsóknarfrestur um að fara út fyrir Íslands hönd er til 5. apríl 2013 og skulu umsóknirnar berast á netfangið
This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. fyrir þann tíma.
Umsóknareyðublað er að finna á vef LH, www.lhhestar.is undir Æskulýðsmál.
Einnig hægt að nálgast umsóknina með því að smella hér.
Kostnaður við búðirnar er €550 sem er fæði, uppihald og allar ferðir og afþreying í Noregi. Flug og ferðir til og frá FEIF YC staðnum í Noregi eru ekki innifaldar.
Skrifstofa LH veitir allar nánari upplýsingar í síma 514 4030 eða í gegnum netfangið
This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it..
Upplýsingar á ensku