Ferðanefnd Spretts boðar til hópreiðar á sumardaginn fyrsta, fimmtudaginn næstkomandi þann 24. apríl í Kaldársel. Lagt verður af stað frá nýju reiðhöll Spretts klukkan 13:30. Riðið skal sem leið liggur um Heiðmörk og Gjármót gegnum Smyrlabúð í KALDÁRSEL. Áætlaður reiðtími er ca. 1 til 1 ½ klukkustundir hvor leið.
Eftir ferðina er stefnan tekin á Súpudag Kvennadeildar Spretts sem fram fer í veislusal reiðhallarinnar klukkan 17:00 sama dag.
Sjá nánar um Súpudag Spretts.Hvetjum alla félagsmenn til að koma með þessa skemmtilegu leið og enda í súpu hjá Kvennadeildinni.
Sjáumst hress og kát á sumardaginn fyrsta!
Ferðanefndin