-Skráning hefst 4. aprílUndirbúningur fyrir Kvennatölt Spretts stendur nú sem hæst og stefnir í feiknaflott mót. Verðlaunin eru ekki af verri endanum, m.a. hestaferðir, flug, úlpur, glæsilegir farandgripir, eignargripir o.m.fl. Veitt verða verðlaun fyrir glæsilegasta parið í öllum flokkum og í því samhengi verður litið til snyrtimennsku manns og hests, heildarútlits og samspils.
Umgjörð mótsins verður öll hin veglegasta, fimm reyndir dómarar dæma og markmiðið er að halda sterkt mót í góðri stemmingu.
Skráning hefst á föstudaginn kemur, 4. apríl og stendur til og með 8. apríl næstkomandi. Skráningargjald er kr. 4.500 á hest og má skrá fleiri en einn hest til þátttöku, en komi knapi fleiri en einum hesti í úrslit skal hann velja einn hest til úrslitakeppni. Aldurstakmark er 18 ár (miðast við ungmennaflokkinn).
Skráning fer fram á sportfengur.com undir "Skráningarkerfi" og þar undir á svo að velja "Mót." Þaðan á kerfið að leiða fólk áfram. Boðið er upp á fjóra keppnisflokka á mótinu:
- Byrjendaflokk (skráður sem Annað í Sportfeng)
- Minna vanar
- Meira vanar
- Opinn flokk
Hafi knapi sigrað einhvern flokk í Kvennatöltinu áður ber viðkomandi að færa sig upp um flokk. Það sama á við ef knapi hefur þrisvar eða oftar komist í A-úrslit í einhverjum flokki ber viðkomandi að færa sig upp um flokk. Knapar eru hvattir til að sýna metnað við skráningu í flokka.
Í byrjendaflokki er sýnt hægt tölt og svo tölt á frjálsum hraða, ekkert snúið við. Í hinum flokkunum þremur er sýnt hægt tölt, snúið við, sýnt tölt með hraðabreytingum og svo greitt tölt. Tveir til þrír knapar inni á vellinum í einu og þulur stýrir. Lögð er áhersla á góða og vinalega stemmingu og ekkert stress þannig að keppendur njóti sín sem allra best.
Afskráningar, breytingar og fyrirspurnir skulu berast á netfangið
This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.Kvennatöltið fer fram í hinni glæsilegu reiðhöll Spretts á Kjóavöllum laugardaginn 12. apríl nk. Forkeppni hefst að morgni og er stefnt að því að ljúka mótinu um kl. 18. Veitingasala verður á staðnum og vel fer um áhorfendur á pöllunum svo hestamenn eru hvattir til að mæta og fylgjast með flottu móti.
Við bendum á að stofnaður hefur verið viðburður á Facebook fyrir Kvennatöltið undir heitinu "Kvennatölt Spretts" og allir þeir sem melda sig þar inn fara í pott sem dregið verður úr á mótinu. Í verðlaun eru tveir miðar á hina glæsilegu stóðhestaveislu í Ölfushöllinni sem fram fer að kvöldi sama dags, 12. apríl. Endilega skráið ykkur þar inn og fylgist með fréttum af mótinu.