Síðastliðinn mánudag var fyrsti fundur nýrrar stjórnar haldinn. Stjórnin skipti með sér verkum þannig að varaformaður Spretts er
Hermann Vilmundarson, gjaldkeri Spretts Lárus Finnbogason og ritari Kristín Njálsdóttir. Eins og áður var sagt er formaður Spretts Linda B. Gunnlaugsdóttir.
Mikill hugur er í nýju stjórninni sem hlakkar til að vinna með félagsmönnum í því að gera félagið sterkara enda grunnurinn góður.
Á meðfylgjandi mynd er ný stjórn Spretts ásamt framkvæmdastjóra félagsins og íþróttamanni Spretts 2013. Frá vinstri: Sigurlaug Anna Jóhannsdóttir framkvæmdastjóri, Hannes Hjartarson, Brynja Viðarsdóttir, Sigurður Halldórsson, Hermann Vilmundarson, Linda B. Gunnlaugsdóttir, Kristín Njálsdóttir, Lárus Finnbogason og Erling Ó. Sigurðsson hestaíþróttamaður Spretts 2013.