Næstu daga verða sendir út greiðsluseðlar til félagsmanna í Hestamannafélaginu Spretti fyrir árgjaldi ársins 2014.
Gjaldið var ákveðið á aðalfundi félagsins þann 12. mars sl., þannig að 18-21 árs greiða 4.500 krónur en 22-67 ára greiða 9.000 krónur.
Stjórn félagsins mun áfram verða heimilt að fella niður eða veita afslátt af félagsgjöldum öryrkja.
Þeir sem skrá sig í félagið eftir að seðlar hafa verið sendir út fá í kjölfar skráningar senda greiðsluseðla.