Á aðalfundi Spretts í kvöld verður kjörinn nýr formaður og ný stjórn í samræmi við
6.grein laga félagsins. Úr stjórn ganga Sveinbjörn Sveinbjörnsson formaður, Þorvaldur Sigurðsson varaformaður, Guðmundur Hagalínsson gjaldkeri og Ingibjörg G. Geirsdóttir.
Einnig verður kosið í nefndir félagsins en þær eru eftirfarandi:
- Ferðanefnd
- Firmanefnd
- Fræðslunefnd
- Laganefnd
- Meistaramótsnefnd
- Mótanefnd
- Reiðveganefnd
- Tölvu og tækninefnd
- Umhverfisnefnd
- Vallarnefnd
- Æskulýðsnefnd
Um hlutverk nefnda og verksvið er hægt að lesa á heimasíðunni.
Félagar í Spretti eru hvattir til þess að gefa kost á sér til starfa fyrir félagið á aðalfundinum.