Sprettskórinn heldur hina árlegu kórskemmtun og ball laugardaginn 22.mars 2014 í félagsheimili reiðhallar Spretts. Á söngskránni verða gamlar perlur í bland við nýjar, einsöngslög og dúettar. Grundartangakórinn verður gestakór á kórskemmtuninni.
Stjórnandi er Atli Guðlaugsson
Að tónleikum loknum spilar hinn landskunni Hörður Ólafsson (Bassi), fyrir dansi.Miðaverð á tónleika er 2500kr. Miðar seldir við innganginn.Húsið opnar kl 20:00 og tónleikar hefjast kl 20:30. Hlökkum til að sjá ykkur