Hið eina sanna Kvennatölt verður haldið í reiðhöll Spretts á Kjóavöllum laugardaginn 12. apríl nk. Forkeppni mun hefjast að morgni og stefnt er að því að ljúka mótinu fyrir kl. 18 svo ekki verði skörun við hina vinsælu Stóðhestaveislu sem fram fer um kvöldið.
Að venju verður boðið upp á keppni í fjórum flokkum; Byrjendaflokki, minna keppnisvönum, meira keppnisvönum og opnum flokki. Byrjendur sýna hægt tölt og fegurðartölt, allir aðrir flokkar sýna hefðbundið töltprógramm, hægt tölt, snúið við, hraðabreytingar og svo greitt tölt. Aldurstakmark er 18 ár – miðast við ungmennaflokk.
Nánari upplýsingar um skráningu verða birtar þegar nær dregur en nú er um að gera fyrir allar konur að gera sig klárar, hefja stífar æfingar og muna að hafa gaman af. Kvennatöltið var fyrst haldið fyrir 15 árum síðan í Gusti og hefur verið eitt vinsælasta innanhússmót ársins á hverju ári. Vegleg verðlaun verða í boði og aðstaða til keppni frábær í hinni nýju glæsilegu reiðhöll Spretts.
Hægt verður að fylgjast með fréttum af mótinu á netmiðlum hestamanna sem og á Facebook.