• Fréttir
  • facebook
  • Dagskrá
  • Námskeið
  • Félagið
  • Reiðhöll
  • Arnarfell
  • Myndir
  • Innskráning

Fréttir

Skráning á Metamót Spretts framlengd

Skrifað þann Ágúst 29 2022
  • Print
  • Netfang

Aflokkur Metamót 2021

Skráningarfrestur á Metamót Spretts hefur verið framlengdur til miðnættis mánudagsins 29.ágúst.

Mótið fer fram á Samskipavellinum 2.-4. september.

Á mótinu verður boðið upp á opinn flokk og áhugamannaflokk.

Keppt verður í A- og B-flokki gæðinga á beinni braut(ekki sýnt fet og stökk).
Boðið verður uppá Gæðingatölt í opnum flokki og áhugamannaflokki.
Einnig verður boðið upp á keppni í tölti T3, 1.flokki og 2.flokki.

Fyrirtækjatöltið verður á sínum stað.

Að sjálfsögðu verða skeiðkappreiðar að venju og keppt verður í 100m fljúgandi ljósaskeiði, 150m skeiði og 250m skeiði.

Aldurstakmark er í keppni á mótinu og miðast þátttökuréttur við ungmennaflokk.

Leita á vefnum

Höfundarréttur © Hestamannafélagið Sprettur. Allur réttur áskilinn.
Fréttir