• Fréttir
  • facebook
  • Dagskrá
  • Námskeið
  • Félagið
  • Reiðhöll
  • Arnarfell
  • Myndir
  • Innskráning

Fréttir

Metamót Spretts 2022

Skrifað þann Ágúst 21 2022
  • Print
  • Netfang

sprettur logo net

Hið stórskemmtilega Metamót Spretts fer fram á Samskipavellinum 2.-4. september.
Á mótinu verður boðið upp á opinn flokk og áhugamannaflokk.
Keppt verður í A- og B-flokki gæðinga á beinni braut(ekki sýnt fet og stökk).
Boðið verður uppá Gæðingatölt í opnum flokki og áhugamannaflokki.
Einnig verður boðið upp á keppni í tölti T3, 1.flokki og 2.flokki.

Fyrirtækjatöltið verður á sínum stað.

Að sjálfsögðu verða skeiðkappreiðar að venju og keppt verður í 100m fljúgandi ljósaskeiði, 150m skeiði og 250m skeiði.

Aldurstakmark er í keppni á mótinu og miðast þátttökuréttur við ungmennaflokk.


Skráning fer fram í gegnum Sportfeng, skráning verður opin til og með 28.ágúst.

Hlökkum til að sjá sem flesta á síðasta móti sumarsins.

Nefndin

Leita á vefnum

Höfundarréttur © Hestamannafélagið Sprettur. Allur réttur áskilinn.
Fréttir