Fyrsta kvennakvöld Spretts verður haldið fimmtudagskvöldið 27. febrúar kl. 20 í veislusal reiðhallarinnar.
Í upphafi verður örstuttur aðalfundur kvennadeildarinnar. Síðan mun gleðigjafinn síungi Heiðar Jónsson snyrtir skemmta.
Sprettskonur - mætum allar og skemmtum okkur saman!
Stjórn kvennadeildar Spretts