Sprettur ætlar að bjóða upp á opið æfingamótaröð í apríl fyrir komandi íþróttamót.
Stefnt er að því að halda mótið úti ef veður og aðstæður leyfa.
Eingöngu verður riðin forkeppni og ekki verður raðað í sæti eða verðlaun veitt. Skráning er hafin og stendur yfir til og með 10. apríl.
Skráningargjald 3000 kr.
Mótin verða eftirfarandi:
- 12. apríl þriðjudagur - fjórgangur V5 og V2
- 19. apríl þriðjudagur - tölt T7 og T3
- 26. apríl þriðjudagur - fimmgangur F2
Hér er tengill á viðburðinn á Facebook
Fjórgangur opið æfingamót Spretts | Facebook