Nú fyrir helgi kynnti Landsamband Hestamannafélaga U21 landsliðhóp 2022.
Við Sprettarar getum heldur betur verið stolt af unga fólkinu okkar, í þessum hóp eru 3 Sprettarar, það eru þau Hulda María Sveinbjörnsdóttir, Kristófer Darri Sigurðsson og Sigurður Baldur Ríkharðsson.
Þau hafa öll staðið sig frábærlega hvort sem er innan vallar eða utan og eru þau öll frábærar fyrirmyndir fyrir yngri félagsmenn Spretts.
Til hamingju öll.