Nú í kvöld fékk Halldór Helgi Halldórsson heiðursverðlaun Landsambands Hestamannafélaga fyrir framlag sitt til LH, eins og við flest vitum þá hefur Halldór unnið ómetanlegt starf fyrir okkur hestamenn vegna reiðleiða bæði hér á höfuðborgarsvæðinu og víða um land.
Halldór Helgi Halldórsson gerðist félagi í hestamannafélaginu Andvara 1983 og starfaði í ýmsum nefndum félagsins auk þess að sitja um tíma í stjórn félagsins
Halldór var formaður Reiðveganefndar í Kjalarnesþingi og er nú gjaldkeri þeirrar nefndar.
Halldór var í stjórn Landsmóts 2000 og sat í varastjórn LH 2002-2006, í Ferða- og samgöngunefnd LH frá 2002 og sem formaður nefndarinnar frá og með 2006 til 2020, er enn í kallfæri ef á þarf að halda.
Helstu verkefni voru að vinna að og stofna svæðisbundnu reiðveganefndirnar, en formenn þeirra skipa Ferða- og samgöngunefnd LH sem m.a. sér um úthlutanir reiðvegafjár. Baráttumál var að verja það reiðvegafé sem var til úthlutunnar af vegaáætlun. Færð hafa verið rök fyrir því við ráðherra að reiðvegafé skuli aukið verulega frá því sem var og tókst það á þessu ári að reiðvegafé var aukið um 67% eða í 125. m.kr.
Ferða- og samgöngunefnd LH fékk það veganesti að skrá reiðvegi á landinu, ýmsar leiðir til þess voru reyndar en gáfust misvel. Það var svo árið 2008 að nefndin komst í samstarf við Loftmyndir ehf og sett var á laggirnar Kortasjá LH sem dæmið með skráningu reiðleiða á landinu komst á rekspöl. Hitann og þungann af skráningu reiðleiða í kortasjá og þróun hennar hafa þeir Halldór og Sæmundur Eiríksson varaformaður nefndarinnar borið. Í dag er búið að skrá á fimmtánda þúsund km. af reiðleiðum í kortasjána. Kortasjáin er til mikilla hagsbóta fyrir hestaferðamennsku og aðra, þannig hafa t.d. nokkur sveitarfélög óskað eftir ferlum úr kortasjánni og eða tengjast henni beint.
Halldór setti á laggirnar FB síðu kortasjárinnar, Kortasjá / samgöngunefnd LH, en þar kemur fram allt nýtt varðandi kortasjána ásamt öðru sem tengist reiðleiðum, fylgjendur síðunnar eru um 1500.
Halldór ásamt Sæmundi hafa f.h. LH unnið að uppfærslu og endurhönnun reiðvegahandbókarinnar „Reiðstígar – gerð og uppbygging“ en um er að ræða samstarfsverkefni LH og Vegagerðarinnar, það verk er á lokametrunum.
Halldór var gerður að heiðursfélaga hestamannafélagsins Andvara 2009, honum var veitt gullmerki LH 2012 og silfurmerki hestamannafélagsins Spretts 2018.
Reiðveganefnd LH á eftir að fá að leita í smiðju Halldórs næstu árin, en Halldór hefur yfirburðar þekkingu á reiðvegum landsins og málefnum þeim tengdum.