Undirbúningur er hafinn fyrir áttunda keppnisárið í Áhugamannadeild Spretts. Mótahald síðasta árs litaðist mikið af því ástandi sem Covid-19 leiddi af sér en þó tókst að ljúka Áhugamannadeildinni inni í Samskipahöllinni.
Í ár vonumst við til þess að halda mótaröðina með sem hefðbundnustum hætti þó ávallt verði tekið tillit til sóttvarnaráðstafana hverju sinni og verða tilkynningar þess efnis sendar út eftir því sem við á.
Við stefnum á glæsileg mót árið 2022 og hafa dagsetningar löngu verið teknar frá í Samskipahöllinni góðu.
Við fengum nýverið þær góðu fréttir að Equsana ætli áfram að styrkja mótaröðina líkt og fyrri ár og erum við þakklát fyrir það.
Mótaröðin 2022 verður með breyttu fyrirkomulagi þar sem áfram hefur verið ákveðið að hafa ekki keppni í skeiði í gegnum höllina. Hins vegar bætist við ný grein, gæðingaskeið, sem stefnt er á að haldin verði úti á velli í Spretti. Hvert lið hefur heimild til að tefla fram öllum fimm knöpum liðsins í gæðingaskeiði, slaktaumatölti og tölti, en einungis þrjár efstu einkunnir gilda til stigagjafar. Einungis þrír efstu knapar hvers liðs eru gjaldgengir í úrslit að lokinni forkeppni í tölti og slaktaumatölti.
Tíu af þrettán liðum Áhugamannadeildar Spretts 2021 hafa áunnið sér keppnisrétt fyrir árið 2022. Samkvæmt reglum deildarinnar falla þrjú lið úr deildinni eftir keppnisárið 2021 og eru það lið Camper Iceland, Hvolpasveitarinnar og Kaffivagnsins.
Þau lið sem unnið hafa sér keppnisrétt verða að staðfesta við forsvarsmenn deildarinnar áframhaldandi þátttöku fyrir 5. september 2021 ásamt liðskipan.
Hvert lið hefur fimm knapa.
Ný lið sem áhuga hafa á að koma í deildina þurfa að skila inn umsóknum fyrir 30. september nk. Umsókninni þurfa að fylgja staðfest nöfn fimm knapa liðsins. Dregið verður úr umsóknum þriðjudaginn 5. október.
Þau lið sem féllu úr deildinni 2021 geta sótt um aftur og fara í pottinn ásamt nýjum liðum sem sækja um. Það eru fimm sæti laus í Áhugamannadeild Spretts 2022.
Umsóknir sendist á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. fyrir 30. september n.k.
Við minnum á reglur Áhugamannadeildar Spretts – liður 7 - um hvaða knapar hafa keppnisrétt í deildinni.
Þær breytingar hafa verið gerðar á reglunum að sá liður sem hann snéri að því að þeir knapar sem hafa lokið reiðkennarnámi á háskólastigi hafa ekki keppnisrétt fellur út.
Hafa þeir knapar sem uppfylla önnur skilyrði 7. gr. reglanna keppnisrétt.
7. Keppendur í Áhugamannadeildinni – inngangsskilyrði
7.1. Knapar sem hafa töluverða reynslu af keppni en deildin er ekki byrjendadeild.
7.2. Knapar sem ekki hafa keppt í F1, V1, T1, T2 eða Meistaradeild seinustu 3 ár.
7.3 Öll gæðingakeppni, á öllum stigum, og kappreiðar er undanskilin þ.e.a.s. heimilt er að keppa í gæðingakeppni og kappreiðum án þess að það hafi áhrif á inngangskilyrði.
7.4 Þessar reglur gilda um öll mót, einnig innanhúsmót.
7.5 Knapar sem hafa ekki haft laun af tamningu eða þjálfun hesta seinustu 3 ár
7.6 Villiköttur í Meistaradeild hefur ekki leyfi til að keppa í Áhugamannadeild
7.7 Lágmarksaldur keppenda í Áhugamannadeild er 22 ár.
7.8 Stjórn Áhugamannadeildar Spretts hefur loka ákvörðunarvald um hvort knapar uppfylla inngangskilyrði
Íslandsmót 2021 er undanskilið þ.e.a.s. keppni á Íslandsmóti hefur ekki áhrif á inngangskilyrði í Áhugamannadeild 2022.
Dagsetningar móta 2022 hafa verið ákveðnar – með fyrirvara um niðurröðun greina.
Fimmtudagur 3. febrúar: Fjórgangur
Fimmtudagur 17. febrúar: Fimmgangur
Fimmtudagur 3. mars: Slaktaumatölt
Laugardagur 12. mars: Gæðingaskeið
Fimmtudagur 17 mars: Tölt – lokamótið
Hvetjum hestamenn að safna saman í lið og sækja um í Áhugamannadeild Spretts 2022.