Aðalfundar Hestamannafélagsins Spretts fyrir starfsárið október 2019 til september 2020 verður haldinn 26. ágúst kl. 18:00.
Fundurinn verður haldinn í Arnarfelli. Vegna samkomutakmarkana verða fundarmenn beðnir að skrá sig inn í hólf þegar þeir mæta á fundinn. Veitingar verða ekki bornar fram.
Þar sem áður boðaður aðalfundur 18. maí sl. var ekki löglegur vegna þess að ekki náðist lágmarksfjöldi fundarmanna er nauðsynlegt að boða til fundar að nýju með vísan til 3. mgr. 9. gr. laga félagsins.
Dagskrá fundarins er samkvæmt 10. gr. laga félagsins.
Fundarsetning.
Kosning fundarstjóra og fundarritara.
Skýrsla stjórnar um störf félagsins á síðasta starfsári.
Framlagning reikninga félagsins.
Lagabreytingar.
Kosning stjórnar skv. 6. gr. laga félagsins.
Kosning tveggja skoðunarmanna og tveggja til vara skv. 6. gr. laga félagsins.
Kosning í nefndir skv. 17. gr. laga félagsins.
Ákvörðun félagsgjalds.
Fjárhagsáætlun næsta árs.
Önnur mál er félagið varða.
Lagabreytingar
Stjórn leggur til eftirfarandi breytingar á lögum félagsins:
1. Breytingar á 11. gr. er varða reikningsár félagsins. Greinin hljóði þannig: Reikningsár félagsins er almanaksárið.
2. Breyting á 10. gr. laga félagsins varðar tímasetningu aðalfundar sem er í núverndi lögum að skuli halda fyrir 1. desember ár hvert. Tillaga er því gerð um breytta 10. gr. er hljóði svo: Aðalfundur hefur æðsta vald í málefnum félagsins. Aðalfund skal halda fyrir 1. júní ár hvert, og skal hann boðaður skv. ákvæðum 9. gr. en þó með minnst viku fyrirvara.
Kosning stjórnar.
Á aðalfundinum ganga þrír stjórnarmenn úr stjórn. Þau Margrét Tómasdóttir, Ólafur Karl Eyjólfsson og Kristján Ríkharðsson ljúka sínu kjörtímabili.
Samkvæmt 6. gr. laga félagsins skal framboði til stjórnarsetu skilað til stjórnar félagsins eigi síðar en viku fyrir aðalfund. Kjörgengir eru allir félagsmenn, 18 ára og eldri, sem eru í skilum með félagsgjöld. Auglýst hefur verið eftir framboðum og bárust formanni félagsins þrjár tilkynningar um framboð .
Þær Jenný Eriksson, Kolfinna Guðmundsdóttir og Margrét Tómasdóttir gefa kost á sér til eins sér til tveggja ára. Þar sem ekki fleiri framboð hafa borist eru þær sjálfkjörnar.
Tillaga að félagsgjaldi.
Stjórn leggur til að félagsgjald verði óbreytt.
Stjórn hmf. Spretts."