SKRÁNINGARFRESTUR FRAMLENGDUR TIL KL 17:00 ÞRIÐJUDAGINN 11.MAÍ
Hið sívinsæla karlatölt Spretts verður haldið miðvikudaginn 12. maí næstkomandi í Samskipahöllinni í Spretti.Skráningu lýkur í kvöld 9.maí
Að þessu sinni verður boðið upp á keppni í fjórum flokkum:
T3 Opinn flokkur, í boði NorlandAir - gert er ráð fyrir að reynslumiklir knapar skrái sig í þennan flokk.
T3 Opinn flokkur, 1.flokkur, í boði Íslenskra Verðbréfa - ætlaður þeim sem eru töluvert vanir í keppni.
T7 Opinn flokkur, 2. flokkur, í boði Hestvits - ætlaður þeim sem hafa litla reynslu í keppni, en þó einhverja.
T7 Opinn flokkur, 3. flokkur, í boði Útfararþjónustu Íslands - ætlaður þeim sem eru að stíga sín fyrstu skref á keppnisvellinum eða hafa mjög litla reynslu..
ATH!
- Hafi keppandi sigrað í einhverjum styrkleikaflokki karlatöltsins áður skal viðkomandi færast upp um flokk.
- Hafi keppandi komist þrisvar í A-úrslit í einhverjum styrkleikaflokki karlatöltsins áður skal viðkomandi færast upp um flokk.
Keppendur eru hvattir til að sýna metnað við val á keppnisflokki!
Í keppni í T7 eru þrír keppendur saman í holli, sýnt er hægt tölt, snúið við og svo sýnt tölt á frjálsri ferð (fegurðartölt). Í keppni í T3 eru 2-3 keppendur saman í holli, sýnt hægt tölt, snúið við, tölt með hraðabreytingum og svo greitt tölt.
Aðeins er hægt að skrá í gegnum skráningakerfið www.sportfengur.com. Skráning hefst sunnudaginn 2. maí og lýkur sunnudaginn 9. maíl. Skráning pr. hest er 4500 kr og er leyfilegt að skrá fleiri en einn hest.
Veglegir vinningar verða í boði í öllum flokkum og verða þeir kynntir betur þegar nær dregur. Hvetjum við alla karla til þess að taka þátt í einu skemmtilegasta karlatölti landsins og hafa gaman saman.
Karlatöltsnefnd Spretts