Hið sívinsæla og upprunalega Kvennatölt Spretts og Mercedes-Benz fer fram í Samskipahöllinni í Spretti fimmtudaginn 13. maí n.k. Upphaflega átti að halda mótið í apríl, en vegna veirufaraldursins þurfti að fresta mótinu líkt og öðrum viðburðum.
Að venju er boðið upp á töltkeppni í fjórum flokkum, T3 í 1. og 2. flokki og 3. flokki fyrir minna vanar. Fjórði flokkurinn er eingöngu ætlaður byrjendum í keppni en þar er keppt í T7.
Allar nánari upplýsingar um skráningu, flokkaskiptingu og reglur er að finna á viðburði á Facebook undir nafninu Kvennatölt Spretts 2021. Endilega meldið ykkur inn á viðburðinn til að fylgjast með upplýsingum.
Aldurstakmark er 18 ár, miðað við ungmennaflokk. Athugið að konur sem hafa keppt margoft í Kvennatölti og fleiri mótum teljast ekki minna vanar, heldur ættu að raða sér í 1. og 2. styrkleikaflokk eftir reynslu. Og byrjendaflokkurinn er eins og nafnið bendir til fyrir byrjendur.
Leyfilegt er að skrá fleiri en einn hest til þátttöku, en komi keppandi fleiri en einum hesti í úrslit skal hann velja einn hest til úrslitakeppni.
Skráningargjald er kr. 5.500 per skráningu og fer skráning fram á https://skraning.sportfengur.com/
Konur eru hvattar til að skrá sem fyrst, en dregið verður úr fyrstu 50 og fyrstu 100 skráningunum þar sem heppnar konur hljóta flotta vinninga.
Skráning hefst sunnudaginn 2.maí og lýkur á sunnudeginum 9. maí
Ef einhver lendir í vandræðum með skráningu þá viljum við fá skilaboð á netfangið This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. eða að þið hringið í 6952391. Þær sem vilja fá að skrá sig eftir að skráningu lýkur verða að borga 5000 kr aukalega.
Boðið verður upp á æfingartíma í Samskipahöllinni laugardaginn 8.maí og sunndaginn 9.maí frá kl.18 - 22. Við hvetjum konur til að nýta sér þessa tíma til þess að finna út upp á hvaða hönd sé best að skrá sig.
Stefnt er á að mótið hefjist kl. 12 með forkeppni og úrslit fara fram um kvöldið.
Vonumst til að sjá sem flestar konur!
Kvennatöltsnefnd Spretts