Næstkomandi miðvikudag 21.apríl verður hreinsunardagur Spretts.
Hittumst við Samskipahöllina kl 17:00, náum okkur í poka og röltum af stað.
Við hvetjum félagsmenn til að taka höndum saman og ganga um svæðið okkar og týna rusl, raka reiðvegina og laga til það sem betur má fara, ruslapokar og ahöld verða til staðar.
Við hvetjum félagsmenn til þess að taka til í kringum hesthús sín og þeir sem eiga rúllur/bagga á planinu við Samskipahöllina eru eindregið hvattir til þess að ganga frá lausum endum.
Bílar með kerrur verða á ferðinni til þess að taka við rusli.
Ruslagámur og plastgámur verða á svæðinu.
Ekki verður tekið við byggingarefni eða stærri hlutum frá hesthúseigendum í ruslagámana.
Umhverfisnefnd Spretts