Fyrstu vetrarleikar Spretts fara fram sunnudaginn 14. febrúar kl.13:00 og verða þeir haldir úti.
Skráning fer fram í gegnum meðfylgjandi skjal. Skráningafrestur er til kl 23:00 laugardagskvöldið 13.feb.
Ef fólk lendir í vandræðum með skráningu vinsamlega sendið póst á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
Þátttakendur eru beðnir um að millifæra inn á Sprett á reiking 318-26-010942, Kt 590712-0940 og senda kvittun á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
Keppt verður í T7
Skráningargjöld eru eftirfarandi: pollar frítt, börn 500 kr, unglingar 1000 kr og aðrir flokkar 1500 kr.
Vonumst til að sjá sem flesta sunnudaginn 14. febrúar.
Boðið verður upp á keppni í eftirtöldum flokkum í þessari röð:
Pollar (9 ára og yngri) – teymdir
Pollar (9 ára og yngri) – ríða sjálfir
Börn minna keppnisvön (10-13 ára)
Börn (10-13 ára)
Unglingar - minna keppnisvanir (14-17 ára)
Unglingar - meira keppnisvanir (14-17 ára)
Ungmenni- minna keppnisvön (18-21 árs)
Ungmenni - meira keppnisvön (18-21 árs)
Konur II - minna keppnisvanar
Karlar II - minna keppnisvanir
Heldri menn og konur (60 ára +)
Konur I - meira keppnisvanar
Karlar I - meira keppnisvanir
Opinn flokkur (karlar og konur)
Mótið er ætlað skuldlausum félagsmönnum í hestamannafélaginu Spretti. Hver keppandi má aðeins skrá í einn flokk og eru félagar hvattir til að sýna metnað við skráningu í flokka.
Nefndin áskilur sér rétt til að sameina flokka ef ekki er næg þátttaka í einhverjum þeirra.
Vetrarleikarnir verða þriggja móta röð þar sem verðlaunað er fyrir hvert mót, auk þess sem keppendur safna stigum úr öllum þremur mótunum og verða stigahæstu knaparnir í hverjum flokki verðlaunaðir á síðasta mótinu.
1.sæti gefur 10 stig
2.sæti gefur 8 stig
3.sæti gefur 6 stig
4.sæti gefur 4 stig
5.sæti gefur 2 stig
1 stig fæst fyrir allla þá sem taka þátt