Auglýst er eftir umsóknum í Hæfileikamótun LH á fyrir árið 2021 fyrir unglinga á aldrinum 14-17 ára (unglingaflokkur).
Hæfileikamótun LH er fyrir unga og metnaðarfulla knapa sem hafa áhuga á bæta sig og hestinn sinn. Í þjálfuninni er lögð áhersla á að bæta og auka skilning á líkamsbeitingu knapa og samspili knapa og hests ásamt því að farið verður í hugræna þætti eins og markmiðasetningu, sjálfstraust og hugarfar. Hæfileikamótun er góður undirbúningur fyrir knapa sem hafa að markmiði að komast í U-21árs landslið í hestaíþróttum þegar þeir hafa aldur til. Hópar verða starfræktir um um allt land til þess að ungir knapar víðsvegar um landið fái tækifæri til að taka þátt.
Fyrirkomulag er eftirfarandi:
Hópar verða starfræktir; á höfuðborgarsvæðinu, Vesturlandi, Skagafirði, Eyjafirði, Austurlandi og Suðurlandi. Við hvetjum knapa til að sækja um á þeim stað sem þeim hentar best.
Kennsla fer fram einu sinni í mánuði frá janúar til maí (7x45mín einkatímar). Í maí verður vinna vetrarins færð yfir á keppnisvöllinn.
Hugræn vinna með þjálfara þar sem farið verður í markmiðasetningu, líkamsbeitingu knapa, hugarfar og sjálfstraust.
Fyrirlestrar frá aðilum úr íþróttahreyfingunni.
Að hausti hittast allir þátttakendur án hests í hópefli og fræðslu.
Þjálfarar í Hæfileikamótun LH 2021
Höfuðborgarsvæðið - Hanna Rún Ingibergsdóttir og Gústaf Ásgeir Hinriksson
Vesturland - Randi Holaker
Norðurland - Fanney Dögg Indriðadóttir (Akureyri) og Þorsteinn Björnsson (Skagafirði)
Austurland - Vilfríður Fannberg Sæþórsdóttir
Suðurland - Sigvaldi Lárus Guðmundsson, sem einnig er yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH
Kostnaður knapa er 100.000 kr. fyrir árið.
Umsóknum skal skilað á sérstöku umsóknarblaði á vefsíðu LH. Æskilegt er að senda inn yfirlit keppnisárangurs og tengil í videóupptöku af knapa á youtube eða öðrum miðlum.
Umsóknarfrestur er til 6. desember 2020
Nánari upplýsingar á skrifstofu LH, 514-4030 This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it..