Kæru Sprettarar.
Við í Æskulýðsnefndinni erum að skipuleggja starfið og langar að fá hugmyndir og athugasemdir frá ykkur með það að markmiði að leggja línurnar fyrir veturinn og framtíðina.
Við höfum útbúið lauflétta könnun og viljum biðja ykkur félagsmenn að svara henni til að hjálpa okkur að skipuleggja starfið sem best í ykkar þágu. Við hvetjum foreldra og aðra fullorðna til að svara sjálf og aðstoða yngri börn við að svara. Eldri börn, unglinga og ungmenni hvetjum við til að svara sjálf og með þessu vonumst við til að heyra raddir allra þeirra sem láta sig æskulýðsstarf félagsins varða.
Könnunin verður opin til miðnættis 9. nóvember og hægt er að nálgast hana á þessari slóð
Við vonum að sem flestir taki sér smá stund í að svara og hjálpi okkur að gera starfið sem best
Kveðja, Æskulýðsnefnd Spretts.