Ágætu Sprettarar.
Nú langar okkur að fá Sprettara til liðs við okkur í framkvæmdum í Húsasmiðjuhöllinni.
Við stefnum á að rífa niður hluta af áhorfendapöllunum og smíða svo "hús" þar sem verður kaffistofa og salernisaðstaða.
Okkur langar að boða til skipulagsfundar vegna þessara framkvæmda nk þriðjudag, 3.nóv kl 20:00 í Húsasmiðjuhöllinni.
Vonast til að sjá sem flesta og að við náum að koma þessu í gagnið fyrir veturinn. Munum 2ja metra regluna og pössum uppá sóttvarnir.
Framkvæmdastjóri