Laugardaginn 17.okt ætla vaskir menn að setja upp "gamla Gustsgerðið" sunnan við bílaplanið við Samskipahöllina, meðfram reiðstígnum á móts við Magnúsarlund. Við óskum eftir aðstoð þeirra sem geta og vilja aðstoða við uppsetningu á gerðinu. Það þarf að skrúfa niður jarðvegsskrúfur og stilla gerðið af svo hægt sé að rafsjóða það saman. Mæting verður um kl 10:00. Munum öll eftir sóttvörnum og pössum uppá 2ja metra regluna.