Forvarnavika Garðabæjar 7.-14. október 2020
Hin árlega forvarnavika Garðabæjar verður haldin dagana 7.-14. október 2020.
Þema vikunnar er: ,,AÐ STANDA MEÐ SJÁLFUM SÉR"
Dagskráin fer fram í litlum hópum, innan skóla og á vefmiðlum.
MIÐVIKUDAGUR 7. OKTÓBER:
Forvarnardagurinn er haldinn miðvikudaginn 7. október að frumkvæði forseta Íslands.
„Hvernig stöndum við með sjálfum okkur og um leið hjálpum þeim sem eru í vanda?“ fræðslumyndbönd rithöfundarins Gunnars Helgasonar og Felix Bergssonar sýnd í leikskólum Garðabæjar.
Í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ: Ljóðasamkeppni fyrir nemendur til að vekja athygli á baráttu gegn ofbeldi.
FIMMTUDAGUR 8. OKTÓBER:
Í Sjálandsskóla og Álftanesskóla: Fyrirlestrar um viðhorf og staðalímyndir
„Fávitar“- Sólborg Guðbrandsdóttir, tónlistarkona, fyrirlesari og laganemi
„Karlmennskan“- Þorsteinn V. Einarsson, deildarstjóri í félagsmiðstöð og pistlahöfundur
ÞRIÐJUDAGUR 13. OKTÓBER:
„Líðan unglinga í Garðabæ“ Margrét Lilja Guðmundsdóttir frá Rannsóknum og greiningu kynnir nýjustu niðurstöður úr könnun á högum og líðan grunnskólanemenda í 8.,9. og 10. bekk. Fjarfundir með kennurum og skólastjórum og vefútsending til foreldra í grunnskólum.
VIÐBURÐIR ALLA VIKUNA:
„Að standa með sjálfum sér“ stuttmynd á vegum Ungmennaráðs Garðabæjar, rafræn miðlun.
„Að læra mörk“ verkefni fyrir nemendur í 1.-4 bekk unnið í skólunum út frá bókunum „Þú ert frábær“ og „Rúnar góði“.
Verkefni fyrir nemendur í 5.-7. bekk unnið í skólunum út frá myndinni „Stattu með þér“ o.fl. hugmyndum.
„Ofbeldisforvarnaskólinn“ fyrirlestur og verkefni í Garðaskóla um að búa til fyrirmyndir sem aðstoða við að vinna gegn ofbeldi. Benedikta Sörensen verkefnastjóri og John Friðrik Bond Grétarsson forstöðumaður félagsmiðstöðvarinnar Garðalundar.
Kynfræðsluspilið „Sleikur“ kynnt í efri bekkjum grunnskólanna.
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
Ungmennaráð Garðabæjar