Ágætu Sprettarar.
Í þessari viku verður unnið að lagningu rafstrengs með Grunnuvatnaleiðinni að skátaheimilinu sem nú er risið, vegna þessa verður Grunnuvatnaleið ekki nýtanleg til útreiða á meðan að þessar framkvæmdir eru í gangi.
Einnig er von á ýmsum vinnuvélum á Sprettssvæðinu í kringum Samskipahöllina og við undirbúning fyrir tvö gerði fyrir neðan Heimsenda, fljótlega munum við kalla til félagsmanna okkar við vinnu í uppsetningu á gerðum á svæðinu okkar.
Einnig er á dagskrá hjá okkur að setja upp salerni og jafnvel kaffistofu í Húsasmiðjuhöllinni.
Framkvæmdastjóri