Á hádegi í dag, 31. júlí, tók gildi ný auglýsing heilbrigðisráðherra um takmörkun á samkomum vegna farsóttar og er gildistími hennar til 13. ágúst næstkomandi.Markmið breytinganna sem nú taka gildi er að hægja eins og unnt er á útbreiðslu COVID-19 sjúkdómsins, sem því miður er nú aftur í vexti hér á landi.
Breytingarnar fela meðal annars í sér að fjöldasamkomur, þar sem fleiri en 100 einstaklingar koma saman, eru óheimilar á gildistíma auglýsingarinnar. Gilda reglurnar jafnt um opinber rými sem og einkarými og eru íþróttaviðburðir þar með taldir. Ákvæðið um fjöldatakmörkun (3. grein) tekur þó ekki til barna sem eru fædd árið 2005 og síðar.
Skylt er að hafa a.m.k. 2 metra á milli einstaklinga sem ekki deila heimili á samkomum, öllum vinnustöðum og í allri annarri starfsemi.
Ákvæði um nálægðartakmörkun (4. grein) tekur þó ekki til barna sem eru fædd árið 2005 og síðar.
Í auglýsingunni kemur einnig fram að í starfsemi þar sem notaður er sameiginlegur búnaður, s.s. í íþróttastarfi, starfsemi líkamsræktarstöðva, spilasala og spilakassa skal búnaður sótthreinsaður milli notenda.
1. Að gert verði hlé á æfingum og keppni í íþróttum með snertingu til 13. ágúst næstkomandi eða þar til núgildandi auglýsing um takmarkanir á samkomum fellur úr gildi.
2. Að æfingar og keppni í íþróttum án snertingar haldi áfram eftir því sem hægt er, að virtum reglum um fjöldatakmarkanir og nálægðarmörk skv. auglýsingu heilbrigðisráðherra.
3. Að sameiginlegur búnaður verði sótthreinsaður milli notkunar/notenda.
1. gr.
Ákvörðun og markmið.
Með vísan til 2. mgr. 12. gr. sóttvarnalaga nr. 19/1997 hefur heilbrigðisráðherra ákveðið, að
fenginni tillögu sóttvarnalæknis og í samráði við ríkisstjórnina, að setja á tímabundna takmörkun á
samkomum eftir því sem hér greinir.
Markmið takmörkunarinnar er að hægja eins og unnt er á útbreiðslu COVID-19 sjúkdómsins.
2. gr.
Gildissvið.
Takmörkun á samkomum tekur gildi 31. júlí 2020 kl. 12.00 og gildir til 13. ágúst 2020 kl.
23.59.
Stjórnvöld endurmeta þörf á takmörkuninni eftir því sem efni standa til, þ.e. hvort unnt sé að
aflétta henni fyrr eða hvort þörf sé á að framlengja gildistíma hennar.
Takmörkun á samkomum tekur til landsins alls.
3. gr.
Fjöldatakmörkun.
Í takmörkun á samkomum felst að fjöldasamkomur eru óheimilar á gildistíma þessarar
auglýsingar. Með fjöldasamkomum er átt við þegar fleiri en 100 einstaklingar koma saman, hvort
sem er í opinberum rýmum eða einkarýmum. Er þá m.a. vísað til:
a. Ráðstefna, málþinga, útifunda o.þ.h.
b. Kennslu, fyrirlestra og prófahalds, sbr. þó 1. mgr. 8. gr.
c. Skemmtana, svo sem tónleika, leiksýninga, bíósýninga, íþróttaviðburða og einkasamkvæma.
d. Kirkjuathafna hvers konar, svo sem vegna útfara, giftinga og ferminga, og annarra trúar-
samkoma.
e. Annarra sambærilegra viðburða með fleiri en 100 einstaklingum.
Enn fremur skal tryggt á öllum vinnustöðum og í allri starfsemi að ekki séu á sama tíma fleiri en
100 einstaklingar inni í sama rými.
4. gr.
Nálægðartakmörkun.
Á samkomum, öllum vinnustöðum og í allri annarri starfsemi, m.a. þeirri sem talin er upp í 3.
gr., skal tryggja að hægt sé að hafa a.m.k. 2 metra á milli einstaklinga sem ekki deila heimili.
Í starfsemi sem eðlis síns vegna krefst meiri nálægðar en kveðið er á um í 1. mgr., svo sem í
heilbrigðisþjónustu, á hárgreiðslustofum, nuddstofum og í almenningssamgöngum, skal nota
andlitsgrímu sem hylur nef og munn þar sem fjarlægð milli einstaklinga verður ekki viðkomið.
Andlitsgrímur sem notaðar eru utan heilbrigðisþjónustu skulu uppfylla kröfur sem fram koma í
vinnustofusamþykkt evrópsku staðlasamtakanna (CEN). Sóttvarnalæknir getur sett nánari
leiðbeiningar um kröfur til andlitsgríma samkvæmt ákvæði þessu.
5. gr.
Takmarkanir á starfsemi vegna sérstakrar smithættu.
Veitingastaðir þar sem heimilaðar eru áfengisveitingar og spilasalir skulu ekki hafa opið lengur
en til kl. 23.00 alla daga vikunnar.
Í starfsemi þar sem notaður er sameiginlegur búnaður, s.s. í íþróttastarfi, starfsemi líkamsræktar-
stöðva, spilasala og spilakassa, skal búnaður sótthreinsaður milli notenda.
Nr. 758 30. júlí 2020
6. gr.
Þrif og sótthreinsun almenningsrýma.
Í öllum verslunum, opinberum byggingum og á öðrum stöðum innandyra þar sem umgangur
fólks er nokkur skal þrífa eins oft og unnt er, sérstaklega algenga snertifleti.
Við alla innganga skal tryggja aðgang að sótthreinsandi vökva fyrir hendur og eins víða um
rými og talin er þörf á, m.a. við afgreiðslukassa í verslunum.
7. gr.
Takmörkun gildissviðs.
Ákvæði 3. og 4. gr. auglýsingar þessarar taka ekki til barna sem eru fædd árið 2005 og síðar.
Auglýsingin tekur hvorki til alþjóðaflugvalla og -hafna né til loftfara og skipa í
millilandaferðum.
8. gr.
Undanþágur.
Ráðherra getur veitt undanþágu frá takmörkun á samkomum í þágu allsherjarreglu eða öryggis
ríkisins eða til verndar lífi eða heilsu manna eða dýra.
9. gr.
Gildistaka.
Auglýsing þessi, sem sett er með heimild í 12. gr. sóttvarnalaga nr. 19/1997, tekur gildi eftir því
sem mælt er fyrir um í 2. gr. Frá sama tíma fellur úr gildi auglýsing nr. 739/2020, um takmörkun á
samkomum vegna farsóttar, með síðari breytingum.
Heilbrigðisráðuneytinu, 30. júlí 2020.
F. h. r.
Elsa B. Friðfinnsdóttir.