Minnum á að í dag er síðasti skráningardagur fyrir opna Íþróttamóts Spretts 2020.
Nánari uppýsingar um skráninguna hér að neðan.
Mótanefnd Spretts hefur ákveðið að Íþróttamótið verði opið öllum keppendum.
Fjöldatakmarkanir verða í hverri grein, en hámarksfjöldi keppenda er 20.
Við minnum keppendur og áhorfendur á að sýna ábyrgð og fylgja öllum reglum almannavarna.
Íþróttamót Spretts verður haldið á Samskipavellinum skv. dagskrá dagana 15. – 17. maí.
Til að mótið geti farið fram verðum við að treysta á að keppendur og áhorfendur vinni með okkur að fylgja öllum reglum almannavarna sem munu gilda á þessum tíma.
Mikilvægt er að passa uppá 2 metra regluna hvort sem er keppendur eða áhorfendur.
Skráning á mótið mun standa yfir frá 1. maí og til miðnættis sunnudaginn 10. maí.
Ef keppendur óska eftir að skrá eftir að skráningarfresti lýkur er greitt tvöfalt skráningargjald. Skráning fer fram í gegnum Sportfeng. Mótanefnd áskilur sér rétt til að fella niður eða sameina flokka/greinar ef ekki er næg þátttaka.
Boðið verður uppá eftirfarandi flokka og keppnisgreinar:
Barnaflokkur: Fjórgangur V2 – Fjórgangur V5 – Tölt T3 – Tölt T7
Unglingaflokkur: Fjórgangur V2 – Fimmgangur F2 – Tölt T3 – Tölt T4
Ungmennaflokkur: Fjórgangur V2 – Fimmgangur F2 – Tölt T3 – Tölt T4 – Gæðingaskeið PP1 – 100 m skeið P2
2. flokkur: Fjórgangur V2 – Fjórgangur V5 – Fimmgangur F2 – Tölt T3 – Tölt T4 – Tölt T7 – Gæðingaskeið PP1 – 100 m skeið P2
1. flokkur: Fjórgangur V2 – Fimmgangur F2 – Tölt T3 – Tölt T4 – Gæðingaskeið PP1 – 100 m skeið P2
Meistaraflokkur: Fjórgangur V1 – Fimmgangur F1 – Tölt T1 – Tölt T2 – Gæðingaskeið PP1 – 100 m skeið P2
Skráningagjöld eru eftirfarandi:
Barnaflokkur og unglingaflokkur: 4500 kr.
Ungmennaflokkur, 2. flokkur, 1. flokkur og meistaraflokkur: 5500 kr.
Fyrirspurnir skulu berast á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.