Að gefnu tilefni biðlum við til allra sem eiga heystæður á heyplaninu að ganga frá lausum endum á böggum sínum eða rúllum.
Þeir sem eru með bagga eða rúllur heim við hesthús hjá sér eru einnig beðnir um að ganga frá lausum endum. Mikil slysahætta er af flaksandi plasti og tölum nú ekki um sóðaskapinn sem hlýst af.
Nú eru páskarnir framundan hjá okkur og því tilvalið að taka til í kringum okkur og minnka slysahættur í leiðinni.
Hlýðum Víði og höldum okkur heima við.