Samkomubann vegna Covid 19 faraldursins hefur verið framlengt til 4.maí nk, þar af leiðandi frestast allir viðburðir á vegum Spretts sem voru á dagskrá í apríl, vetrarleikar, firmakeppni, karla og kvennatölt, páskabingó æskulýðsnefndarinnar og Þrauta og leikjadagur æskulýðsnefndarinnar.
Allir viðburðir verða auglýstir þegar nýjar dagsetningar liggja fyrir.
Við biðjum alla Sprettara að virða lokanir á reiðhöllunum vegna samkomubannsins.
Við bendum öllum á að fylgjast vel með upplýsingum um faraldurinn á www.covid.is
Stjórn og framkvæmdastjóri