Æskulýðsnefndin stóð fyrir spila og pizzakvöldi í kvöld 22.jan. Góð mæting var og skemmtilegt kvöld sem krakkarnir áttu saman. Æskulýðsnefndin kynnti dagskrá sína í vetur.
Erla Guðný Gylfadóttir kynnti nýju keppnisgreinina Trec fyrir krökkunum og sýndi þeim myndir frá ýmsum þrautabrautum og keppnum.
Krakkarnir komu mörg hver með spil með sér að heima og myndaðist skemmtileg stemmning þegar setið var og spilað, spjallað og hlegið.