Stóðhestaveislu Eiðfaxa, sem var fyrirhugað að halda í Samskipahöllinni þann 4.apríl nk., hefur verið aflýst. Ástæðuna er að rekja til þeirra aðstæðna sem hafa skapast vegna Covid-veirunnar og við teljum því nauðsynlegt að falla frá fyrirætlunum um samkomu af þeirri stærðargráðu sem Stóðhestaveislan er.