Ítalski söngvarinn og einn ástsælasti tenór heims, Andrea Bocelli, heldur sögulega risatónleika í Kórnum laugardaginn 23. maí. 2020. Bocelli er þekktur fyrir að vera með eina fallegustu rödd heims.
Hluti tónleikagesta mun leggja á bílastæðum sunnan
við Kórinn og við Samskipahöllina sem takmarkar
umferð um þann hluta svæðisins.
Biðjum við kerru og vagna eigendur
að rýma kerrustæði norðan Markavegar
fyrir miðnætti sunnudaginn 17. maí, þar
sem þau verða notuð undir bílastæði
tónleikagesta.
Dagana fyrir og eftir tónleika má reikna með umferð
stærri gáma- og vöruflutningabifreiða á svæðinu.
Nánari upplýsingar verða auglýstar þegar nær dregur tónleikunum.