Fyrir þá sem þurfa að losna við skít úr hesthúsum sínum eða skítaþróm þá höfum við Sprettarar ákveðið að hægt verði að losa skít hér á svæðinu á ákveðnum losunardögum sérstaklega, gegn gjaldi.
Ef fólk er í vandræðum með að losna við skít þá er hægt að hafa samband við Snæbjörn í síma 862-1786.
Mikilvægt er að skíturinn sé hreinn, þ.e.a.s ekki plast, spýtur, bönd eða annað rusl saman við.
Ekki er heimilt að losa skít án leyfis.
Stjórn og framkvæmdastjóri