Hér má nálgast þau skipulagsmál sem eru í kynningu hjá Garðabæ. Hagsmunaaðilar eru hvattir til að kynna sér málin.
Athugasemdum eða ábendingum við kynntar tillögur skal skila skriflega til tækni- og umhverfissviðs Garðabæjar, Garðatorgi 7, eða með tölvupósti á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. fyrir lok þess dags sem gefinn er upp hverju sinni.
Bæjarstjórn Garðabæjar auglýsir hér með tillögur að breytingu deiliskipulags hesthúsabyggðar að Kjóavöllum í samræmi við 1. mgr. 41 gr. skipulagslaga nr. 123/2010 sbr. 1 mgr. 43. gr. sömu laga.
Bæjarstjórn Garðabæjar auglýsir hér með tillögur að breytingu deiliskipulags hesthúsabyggðar að Kjóavöllum í samræmi við 1. mgr. 41 gr. skipulagslaga nr. 123/2010 sbr. 1 mgr. 43. gr. sömu laga.
Tillagan gerir m.a. ráð fyrir breytingum á legu byggingareita ofan götu í Rjúpnahlíð og svæði fyrir heygeymslu. Tillagan gerir ekki ráð fyrir breytingum innan lögsögu Kópavogs.
Tillögurnar eru aðgengilegar hér á vef Garðabæjar, gardabaer.is og í þjónustuveri. Þeir sem telja sig eiga hagsmuni að gæta er gefinn kostur á að senda inn skriflegar athugasemdir til og með 30. mars 2020, annað hvort á netfangið This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. eða á bæjarskrifstofur Garðabæjar, Garðatorgi 7, 210 Garðabæ.
Tækni-og umhverfissvið Garðabæjar
https://www.gardabaer.is/umhverfi/skipulag/skipulag-i-kynningu/auglysing-um-deiliskipulagsbreytingu-i-gardabae-kjoavellir