Nú er opið fyrir skráningar á ýmis námskeið sem byrja fyrstu dagana í febrúar 2014
Nokkur pláss eru laus hjá Sigrúnu Sig. Laust er á Pollanámskeið sem kennt verður á sunnudögum kenari verður Halla María Þórðard. Nokkur pláss eru laus á Sirkusnámskeiðið skemmtilega, kennari er Ragnheiður Þorvaldsd. Trec er nýtt námskeið sem skemmtilegt er að kynna sér og um að gera að skrá sig, Erla Guðný Gylfadóttir mun sjá um kennslu á því.
Laust er á knapamerki 1 námskeið sem kennt verður á föstudögum kl 17 og sunnudögum kl 13, kennari þar verður Halla María Þórðard. Námskeiðið er bæði fyrir börn og fullorðna. Fyrsti tími verður 24.jan nk.
Hvetjum fólk til að nýta sér það fjölbreytta framboð námskeiða sem er í boði hjá okkur Sprettururm.
Fræðslunefnd.