Í von um betri mætingu í laugardagsreiðtúrana hafa Ármann og Siggi skipulagt ferðir fram í tímann.
Brottför er alla laugardaga stundvíslega kl. 13:30 frá Samskipahöllinni, allir velkomnir.
1. febrúar verður farið í Tunguhvamm-Vatnsvík
8. febrúar verður farið í Grunnuvötn.
15. febrúar verður farið í Maríuhella-Hlíðarenda
Áfangastaðirnir eru líka komnir inná dagskránna á heimasíðunni.
Að loknum reiðtúrum verður boðið uppá kaffi og með því á 2. hæð í Samskipahöllinni. Gaman að hittast eftir góðan reiðtúr og fá sér kaffisopa.
Ef þið viljið heyra í þeim félögum þá er síminn hjá Ármann Magnússon 899 3063 og hjá Sigurði 898 2768