Nefndakvöld Spretts verður haldið í kvöld miðvikudagskvöldið 29. janúar nk. í Samskipahöllinni.
Hvetjujum alla Sprettara til að mæta
Í Spretti starfa vel á annan tug nefnda sem vinna alls kyns verkefni fyrir félagið okkar og eru gríðarlega mikilvægar fyrir öflugt félagsstarf.
Við hóum saman nefndum í almennt spjall og ef einhverjir vilja stíga í pontu og segja stuttlega frá starfi nefndar sinnar þá er það tilvalið.
Við hvetjum félagsmenn til að mæta og eiga skemmtllegt kvöld saman og áhugasama að gefa kost á sér til starfa.
Fundurinn hefst kl. 20 og stefnt að sé lokið kl. 22.
Boðið er upp á kaffi og kruðerí.
Fundarstjóri er Pétur Örn Sverrisson, varaformaður.
Stjórn Spretts