Árshátíðin er frábært tækifæri fyrir okkur sprettara til að hittast og gleðjast saman. Sú hefð er við lýði að bjóða þeim félagsmönnum sem hafa lagt félaginu lið með sjálfboðastörfum, hvort sem er í nefndum eða við önnur verkefni s.s. aðstoð við mótahald.
Formenn nefnda hafa verið látnir vita að bjóða eigi sjálfboðaliðum en til að öruggt sé að enginn gleymist viljum við biðja þá sem skilað hafa að lágmarki sem nemur vinnu einn dag eða eitt mót, og vilja koma á árshátíðina, að senda póst á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. eða This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. og láta vita.
Almenn miðasala verður miðvikudaginn 20.11. milli klukkan 18 og 20 í salnum og kostar miðinn 6900 kr.