Nú fer að líða að einu skemmtilegasta móti ársins, Metamóti Spretts.
Mótið fer fram á Samskipavellinum og í Samskipahöllinni 7. og 8.september. Á mótinu verður keppt í A- og B-flokki gæðinga á beinni braut(ekki sýnt fet og stökk). Boðið verður upp á opinn flokk og áhugamannaflokk. Einnig verður boðið upp á keppni í tölti T3, 1.flokki og 2.flokki. Forkeppnin mun fara fram úti á Samskipavellinum en úrslitin inni í Samskipahöllinni á Laugardagskvöldinu.
Fyrirtækjatöltið verður á sínum stað á laugardagskvöldinu inni í Samskipahöllinni.
Að sjálfsögðu verða skeiðkappreiðar að venju og keppt verður í 100m fljúgandi ljósaskeiði, 150m skeiði og 250m skeiði.
Aldurstakmark er í keppni á mótinu og miðast þátttökuréttur við ungmennaflokk.
Skráning er hafin á www.sportfengur.com