Í næstu viku, 2.-7.júlí verður Íslandsmót eldri og yngrflokka haldið á félagssvæði Fáks í Víðidal. Að mótshaldinu koma öll hestamannafélög á höfuðborgarsvæðinu.
Margar hendur vinna létt verk en verkin eru jú þó nokkur.
Nú leitum við til ykkar Sprettara með að manna mótið, við þurfum að skaffa ritara, starfsfólk í dómpall, fótaskoðara, sendla, hliðverði.
Mótið verður alla daga frá kl 9 á morgnanna og fram á kvöld, vaktir yfir daginn skiptast í þrennt, ca 4 klst hver vakt, allir sjálfboðaliðar fá að sjálfsögðu að borða.
Sjálfboðaliðum verður boðið uppá uppskerukvöld eftir Íslandsmótið, þar sem boðið verður uppá fræðslu af ýmsum toga.
Við hvetjum keppendur á mótinu sérstaklega til þess að leggja hönd á plóg og skrá sig á vaktir hjá okkur.
Þeir sem geta hjálpað til vinsamlega sendið póst með upplýsingum um hvenær þið getið starfað og við hvað á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. eða, This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. eða This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
Með von um góð viðbrögð