Hin árlega kirkjureið hestafólks á höfuðborgarsvæðinu verður næstkomandi sunnudag, 5. maí. Riðið verður til Seljakirkju, þar sem tekið verður á móti hestum í trygga rétt og gæslu. Guðsþjónustan hefst kl. 14. Sr. Valgeir Ástráðsson predikar, Brokkkórinn syngur undir stjórn Magnúsar Kjartanssonar sem jafnframt annast undirleikinn!
Að lokinni guðsþjónustunni verður veglegt kirkjukaffi að vanda. Lagt verður af stað úr hesthúsahverfunum kl. 12:30 og riðið um Heimsenda þar sem hópar sameinast.
Kirkjureiðin er ætluð fyrir alla fjölskylduna og því góð ástæða til að taka þátt í góðum reiðtúr og njóta stundarinnar í kirkjunni.