Opið íþróttamót Spretts verður haldið á Samskipavellinum dagana 16.– 19. maí. Skráning er hafin og stendur til miðnættis sunnudaginn 12. maí.
Ekki verður
tekið við skráningum eftir það. Skráning fer fram í gegnum Sportfeng. Eingöngu er tekið við greiðslum gegn debet- og kreditkortum.
Mótanefnd Spretts áskilur sér rétt til að fella niður eða sameina flokka/greinar ef ekki er næg þáttaka. Lög og reglur um eftirfarandi flokka má finna inná
https://www.lhhestar.is/static/files/Log_og_reglur/2018/lh_logogreglur_2017_1_vidauki_1_2018.pdf Dagskrá verður kynnt þegar skráning liggur fyrir.
Boðið verður uppá eftirfarandi flokka og keppnisgreinar:
Barnaflokkur: Fjórgangur V2 – Fjórgangur V5 – Tölt T3 – Tölt T7
Unglingaflokkur: Fjórgangur V2 – Fimmgangur F2 – Tölt T3 – Tölt T4
Ungmennaflokkur: Fjórgangur V2 – Fimmgangur F2 – Tölt T3 – Tölt T4 – Gæðingaskeið PP1 – 100 m skeið P2
2. flokkur: Fjórgangur V2 – Fjórgangur V5 – Fimmgangur F2 – Tölt T3 – Tölt T4 – Tölt T7 – Gæðingaskeið PP1 – 100 m skeið P2
1. flokkur: Fjórgangur V2 – Fimmgangur F2 – Tölt T3 – Tölt T4 – Gæðingaskeið PP1 – 100 m skeið P2
Meistaraflokkur: Fjórgangur V1 – Fimmgangur F1 – Tölt T1 – Tölt T2 – Gæðingaskeið PP1 – 100 m skeið P2
Skráningagjöld eru eftirfarandi:
Barnaflokkur og unglingaflokkur: 4500 kr.
Ungmennaflokkur, 2. flokkur, 1. flokkur og meistaraflokkur: 5500 kr.
Ef þið lendið í vandræðum við skráningu þá vinsamlegast sendið tölvupóst á
This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it..
Mótanefnd auglýsir eftir aðstoð við ýmis störf á mótinu, en framgangur mótsins veltur alfarið á góðum stuðningi félagsmanna. Áhugasamir setji sig í samband við mótanefndina
This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.