Frá framkvæmdastjóra og stjórn
Vorið er á næsta leiti og fjöldinn allur af félagsmönnum nýtir sér allar þær góðu reiðleiðir sem eru í nágrenni félagssvæðisins. Reiðgötur í Heiðmörk eru ljómandi góðar og margir farnir að fara lengri túra svo sem í kringum Elliðavatn, Grunnuvatnaleið og í Hafnarfjörð. Við minnum á mikilvægi þess að ríða hægra megin í reiðgötunni og þau ykkar sem eru að teyma að muna eftir því að teyma hægra megin við ykkur. Mikil slysahætta getur verið þegar hross og menn mætast í þröngri reiðgötu með marga til reiðar. Hestakostur er góður í Spretti og gaman að sjá unga sem aldna á ferð um hverfið og næsta nágrenni.
Landsamband hestamannafélaga hefur gefið út reiðtilmæli og eru þau eftirfarandi:
1. Hestamenn víkja til hægri á reiðleiðum.
2. Hestar sem eru teymdir skulu ávallt vera hægramegin og ekki fleiri en tveir ( þrír til reiðar ).
3. Reiðhjálmar eru sjálfsögð öryggistæki.
4. Endurskinsmerki í skammdegi veita hestum og mönnum aukið öryggi.
5. Lausir hundar eru ekki leyfilegir á reiðleiðum og í hesthúsahverfum.
6. Áfengi og útreiðar fara ekki saman.
7. Sýnum tillitsemi, ríðum ekki hratt á móti eða aftanundir aðra reiðmenn.
8. Fari margir hestamenn saman í hóp skal ríða í einfaldri röð ef umferð er á móti.
9. Ríðum á reiðvegum og slóðum þar sem því verður viðkomið.
10. Teymum hesta, rekstrar eru bannaðir í þéttbýli.
ÖryggisnefndStofnuð hefur verið öryggisnefnd Spetts sem mun fara yfir öryggismál á svæðinu. Ragna Emilsdóttir er í forsvari fyrir nefndina og er fyrsti fundur fyrirhugaður í næstu viku. Allar hugmyndir og úrbætur vel þegnar en kynnt verður sérstaklega á heimasíðu félagsins hvert eigi að senda upplýsingar og fyrirspurnir.
Losun á skít frá hesthúsumViljum minna félagsmenn á að ekki er heimilt að losa úr skítakörum og sturta á félagssvæðinu. Framkvæmdastjóri gefur frekar upplýsingar.
Ógreidd félagsgjöldTöluvert er enn um ógreidd félagsgjöld. Enn og aftur biðlum við til knapa sem eru að nýta sér svæðið að greiða félagsgjöldin. Félagsgjöld eru nausynleg félaginu til að standa straum af föstum kostnaði.
Vetrarleikar 3Þriðju vetrarleikar Spretts voru haldnir sunnudaginn 07. apríl á beinu brautinni fyrir neðan Samskipahöllina í yndislegu veðri. Brautin var góð og hestakostur einnig. Þá hefur þessari mótaröð verið lokið og þökkum við Spretturum kærlega fyrir þátttökuna. Úrslit mótsins hafa verið sett á heimasíðu félagsins.
http://sprettarar.is/frettir/1746-vetrarleikar-spretts-2
Dymbilvikusýning SprettsNú styttist óðum í hina árlegu Dymbilvikusýningu Spretts sem fram fer í Samskipahöllinni en hún er haldin miðvikudaginn 17. apríl.
Ræktunarhross skipa stóran sess á sýningunni líkt og undanfarin ár, en boðið verður upp á sýningar ræktunarbúa, úrvals hryssur og stóðhesta, ræktunarkeppni hestamannafélaganna á höfuðborgarsvæðinu. Heiðraðir verða íþróttarknapar Spretts 2018 ásamt Landsmóts og íslandsmeistarasigurvegurum, ungir Sprettarar koma fram ásamt mörgu fleira spennandi. Þessar sýningar einkennast af léttleika þar sem fjölskyldur koma saman og sjá það góða starf sem býr í félaginu.
http://sprettarar.is/frettir/1743-dymbilvikusyning-spretts-2019
Skírdagsreið hestamannafélaga á höfuðborgarsvæðinu í HafnarfjörðÞann 18. apríl ríða hestamenn úr Fáki, Herði, og Spretti til Sörla í Hafnarfirði, hittast og gera sér glaðan dag yfir svignandi hlaðborðum Sörlakvenna. Reiðvegur um Urriðaholt, svokallaður Flóttamannavegur er ekki góður til reiðar eins og stendur. Þar hafa verið miklar framkvæmdir undanfarið við frárennslislagnir, gatnagerð ofl. Mikil hætta getur skapast við þær aðstæður sem þar eru. Á köflum er reiðvegurinn ekki nema um ½ meter á breidd og ekki hægt að mætast þar. Vegna slysahættu eru knapar hvattir til að ríða um Heiðmörkina til og frá Hafnarfirði á skírdag. Reiðvegir þar eru í góðu standi eftir veturinn.
HreinsunaradagurinnÁrlegur hreinsunardagur Spretts er 23. Apríl. Við hvetjum alla félagsmenn að taka höndum saman og týna rusl í kringum húsin sín. Við hittumst við Samskipahöllina þar sem pokar undir rusl verða afhentir og komum síðan saman að hreinsun lokinni. Vonumst til að sem flestir láti sjá sig. Margar hendur vinna létt verk.
Firmakeppni SprettsFirmakeppni Spretts verður haldin að venju á sumardaginn fyrsta sem ber uppá 25. apríl að þessu sinni. Við hvetjum alla til að taka þátt og styðja við þetta fjáröflunarframtak nefndarinnar og gleðjast saman.
Opinn viðtalstími framkvæmdastjóraVið minnum á opinn tíma framkvæmdastjóra sem auglýstur var í fyrri fréttabréfum en Magnús Benediktsson tekur á móti gestum og gangandi á mánudögum og miðvikudögum frá k. 9-11. Magnús sér einnig um lykla að reiðhöllum. Sú nýbreyting sem farið var í um áramót að setja lyklakerfið upp með nýjum hætti hefur gefist vel. Hægt er einnig að leggja inn fyrirspurnir í gengum netfangið
This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.