Árleg vísindaferð Hrossaræktarfélags Spretts verður farin 16. mars. Lagt af stað frá Samskipahöllinni kl 9 í rútubíl. Fyrst verða heimsóttir hrossaræktendur og bústjórar að Hestheimum og Sumarliðabæí Rangárþingi ytra. Síðan verður snæddur hefðbundinn hádegisverður á Hellu. Eftir hádegi verður viðkoma á leynistöðum sem kynntir verða nánar á leiðinni.
Fargjald ræðst af fjölda þáttakenda.
Skemmtiferð sem aldrei hefur klikkað, vonumst til að sjá semflesta.
Skráning hjá: This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. í síðasta lagi fimmtud. 14. mars kl 20.
Stjórn Hrossaræktarfélags Spretts