Kæru Sprettsfélagar.
Árið 2018 var einkar viðburðaríkt hjá Hestamannafélaginu Spretti. Haldnir voru ótal viðburðir og glæsilegt mótahald jafnt innandyra sem utan, auk þess sem uppbyggingu var framhaldið.
En ekkert af þessu hefði orðið ef vinnu nefndarmanna og annara sjálfboðaliða nyti ekki við. Þó Sprettur sé fjárhagslega mjög sterkt íþróttafélag og eigi miklar eignir þá liggur styrkleiki félagsins ekki síður í mannauðnum. Því viljum við nota tækifærið og þakka öllum þeim fjölmörgu sem lögðu hönd á plóg við uppbyggingu og félagsstarf í Spretti á liðnu ári. Það starf er ómetanlegt.
Við lítum björtum augum til ársins 2019.
Gleðilegt nýtt ár.
F.h. stjórnar Spretts,
Sveinbjörn Sveinbjörnsson, formaður.
Magnús Benediktsson, framkvæmdastjóri.