Ágætu Sprettarar
Á morgun, fimmtudaginn 22. nóvember ætlum við að vígja hina nýju Grunnuvatnaleið. Vígslan hefst kl 16:00 vestan megin við gamla Andvarasvæðið (nánar tiltekið við plan skógræktarinnar).
Það væri gaman að sjá sem flesta félagsmenn sem sjá sér fært um að koma og fagna þessum tímamótum í reiðvegarmálum okkar Sprettara.
Stjórn Spretts