Ert þú viðbúin(n) að bregðast rétt við bráðaatviki?
Bráðaskólinn býður í samvinnu við Hestamannafélagið Sprett upp á Bráðahjálp barna og fullorðinna sniðið að þörfum hestamanna. Námskeiðið verður haldið í gamla félagsheimili Spretts, Andvaramegin, að Hattarvöllum 1, miðvikudaginn 6. nóv frá kl. 17-22. Námskeiðið er í boði fyrir alla hestamenn óháð félagsaðild og er markmið námskeiðsins að undirbúa hestamenn fyrir það, ef þeir verða fyrstir á slysstað í hestamannahverfinu.
Efni námskeiðs:
• Endurlífgun barna, ofkæling/drukknun, aðskotahlutur í öndunarvegi, öndunarerfiðleikar.
• Endurlífgun fullorðinna, notkun sjálfvirkra hjartastuðtækja, (AED), hjartaáfall, bráðaofnæmi.
• Slys áverkar og lost, áverkaskoðun, áverkar á hrygg og háls.
• Minni skaðar s.s. beinbrot, blæðingar, augnskaðar, brunar og fl.
Kennsluform: Kennt er í 6-8 manna hópum.
Lesefni: Kennsluglærur eru sendar á þátttakendur við staðfestingu á greiðslu þátttökugjalds.
Skráning:
This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. fyrir 24.10 2013
Hámarksfjöldi: 32 manns.
Verð: 11.000 kr á þátttakanda.
Bráðaskólinn sf
www.bradaskolinn.isThis email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.Sesselja H Friðþjófsdóttir gsm: 8412725
Ásgeir Valur Snorrason gsm: 8982609