Hin árlega kirkjureið hestafólks á höfuðborgarsvæðinu verður næstkomandi sunnudag, 13. maí. Riðið verður til Seljakirkju, þar sem tekið verður á móti hestum í trygga rétt og gæslu. Guðsþjónustan hefst kl. 14. Sigurður Kr. Sigurðsson, predikar, Brokkkórinn syngur undir stjórn Magnúsar Kjartanssonar sem jafnframt annast undirleikinn!
Að lokinni guðsþjónustunni verður veglegt kirkjukaffi að vanda. Lagt verður af stað úr hesthúsahverfunum kl. 12:30 og riðið um Heimsenda þar sem hópar sameinast.
Kirkjureiðin er ætluð fyrir alla fjölskylduna. Full ástæða til að taka þátt í góðum reiðtúr og njóta stundarinnar í kirkjunni.